Sunnudaginn 21. júní 2026 ætlum við að gifta okkur! 🥰
Athöfnin hefst kl 11:00 í Húsafellskirkju
Móttaka að Kolsstöðum hefst um 12:30 og veisluhöld hefjast klukkan 13:00. Farið verður í bílalest frá kirkjunni að athöfn lokinni en einnig má finna upplýsingar með Google Maps leiðbeiningum um staðsetningu hér á síðunni í flipanum "Upplýsingar - Staðsetning".
Boðið verður upp á mat frá Grillvagninum og að sjálfsögðu köku og kaffi og meððí seinnipartinn.
Öll þau sem hafa hug á ræðuhöldum eða öðrum uppákomum í veislunni er bent á að hafa samband við Steinunni Arinbjarnardóttur, veislustýruna okkar (sími: 779 0809) eða t.d. í gegnum Facebook (minni í leiðinni að það var búinn til Facebook hópur, "Sigga og Doddi gifta sig loksins").
Hlökkum til að eiga þennan dag með ykkur 💝