Athöfnin fer fram þann 21.júní 2026 klukkan 11:00 í Húsafellskapellu.
Athöfnin tekur vonandi ekki meira en 45 mínútur- klukkustund (Sigga lofar að vera fljót að labba upp að altarinu).
Í ljósi þess að bæði vegna aðgengis, tímasetningar, veðuraðstæðna eða annara ástæðna getur það verið að fólk sjái sér illfært að mæta í athöfnina viljum við, með hlýju, minnast á að við sýnum því mikinn skilning. Svo ekki stressa ykkur, við sjáumst að minnsta kosti í veislunni! :-)
Móttaka að Kolsstöðum hefst klukkan 12:30. Mynduð verður bílalest frá kirkjunni að Kolsstöðum eftir athöfnina en einnig má finna staðsetninguna á korti hér á síðunni.
Veislan sjálf verður frá 13:00-17:00.
Boðið verður upp á hádegismat frá Grillvagninum og svo verða að sjálfsögðu kökur og kaffi meððí eftirá.
Boðið verður upp á vínveitingar, óáfengt, kaffi, te vatn og barnvænt snarl og drykki.
Ef ykkur dreymir um að halda ræðu eða hafið hug á einhvers konar skemmtiatriðum bendum við ykkur á að hafa samband við Steinunni Arinbjarnardóttur, veislustýru. Sími er 779 0809.