Hvernig kemst ég á þennan afskekkta stað?
Þegar ekið er um hringveg landsins er farið upp Borgarfjarðarbraut, í gegnum Reykholt og þaðan sem leið liggur um Hálsasveitarveg uns komið er á Húsafell, frá höfuðborginni er þetta tæplega 2ja tíma akstur.
Er hægt að gista einhvers staðar?
Já, á Húsafelli er gríðarlega gott tjaldsvæði, eins er Hótel Húsafell á svæðinu. Í næsta nágrenni er hægt að fara á hótelið í Reykholti og hótel Á. Eins eiga mörg stéttarfélög sumarhús á svæðinu.
Hvar er veislan?
Veislan er haldin á Kolstöðum. Ekin er 20 mínútna leið norður fyrir skóg. Farið er yfir brúna sem liggur yfir Hvítá, förum þar framhjá Kalmannstungu, framhjá Víðgelmi og Fljótstungu og svo áfram uns Kolsstaðir verða ykkur á hægri hönd. Heimreiðin að Kolsstöðum verður kyrfilega merkt með áberandi fínu skrauti en hér er einnig hægt að fá leiðbeiningar.
Er afþreying á svæðinu?
Heldur betur. Sundlaug Húsfellinga ný uppgerð og fyrir þá sem vilja fara í fallega göngu mælum við með að ganga um Bæjargil og nágrenni og líta á listaverkin sem Páll Guðmundsson myndhöggvari hefur gert og skilið eftir víðsvegar í landslaginu.
Að sama skapi, sér í lagi fyrir þau sem ákveða að vera á tjaldsvæðinu eða í Húsafellsskógi, er tilvalið að taka stöðuna á brennunni sem fer fram öll laugardagskvöld á sumrin. Kveikt er í brennunni klukkan 21.
Ég spila golf, er hægt að gera eitthvað í því?
Já. Á Húsafelli er 9 holu golfvöllur. Einfalt ráð til að spila 18 holur er að spila hann tvisvar 🙂